Ein hjúskaparlög

Við erum prestar, djáknar og guðfræðingar og störfum á vettvangi þjóðkirkjunnar og kristinna fríkirkna á Íslandi. Við fögnum einum hjúskaparlögum á Íslandi sem taka gildi 27. júní 2010. Við fögnum því að þá geti bæði samkynhneigðir og gagnkynhneigðir gengið í hjónaband í kirkjunni sinni.

5/5

„Við styðjum ein hjúskaparlög á Íslandi“

Prestastefna er biskupi til ráðuneytis í kenningarlegum efnum og kölluð saman á hverju ári. Á Prestastefnunni í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010 var lögð fram tillaga fjölmargra presta og guðfræðinga við lagafrumvarp dóms- og mannréttindamálaráðherra um ein hjúskaparlög á Íslandi. Tillagan var svohljóðandi: “Prestastefna haldin í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010 lýsir yfir stuðningi við lagafrumvarp dóms- og mannréttindamálaráðherra um ein hjúskaparlög á Íslandi. Prestastefna telur íslensku þjóðkirkjuna í stakk búna til að stíga þetta skref með ríkisvaldinu í ljósi ítarlegrar guðfræðilegrar umfjöllunar síðustu ára á kirkjulegum vettvangi um kirkju, kynhneigð og hjónaband.” 

Prestastefnan samþykkti með naumum meirihluta að vísa málinu til biskups og kenningarnefndar en taka ekki efnislega afstöðu til tillögunnar í atkvæðagreiðslu. Prestastefna hafnaði ekki tillögunni og flutningsmennirnir drógu hana ekki til baka. Það er því hlutverk biskups og kenningarnefndar að taka afstöðu til frumvarpsins um ein hjúskaparlög á Íslandi á grundvelli tillagna og umræðu á Prestastefnu. Við undirrituð sem erum prestar, guðfræðingar og djáknar í íslensku Þjóðkirkjunni og kristnum fríkirkjum á Íslandi viljum árétta stuðning okkar við þetta frumvarp og ósk okkar um að íslenska þjóðkirkjan taki að sér að gefa saman pör af sama kyni í hjónaband. 

Ríkisstjórn Íslands einsetti sér í stjórnmálasáttmála 10. maí 2009 að vinna að setningu einna hjúskaparlaga á kjörtímabilinu. Málið nýtur stuðnings þingmanna úr öllum flokkum og flokkar í stjórnarandstöðu hafa líka lýst stuðningi við málið í flokkssamþykktum. Það er því traustur þingmeirihluti fyrir einum hjúskaparlögum á Alþingi. Með frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög) sem lagt hefur verið fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi vill þingið leggja áherslu á jafnan rétt einstaklinga til að ganga í hjónaband óháð kyni eða kynhneigð og vísar til sambærilegrar einföldunar á hjúskaparlögum í Hollandi, Belgíu, Spáni, Kanada, Noregi og í Svíþjóð. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að lögin taki gildi 27. júní næstkomandi og eftir það gefist trúfélögum kostur á að vígslumenn þeirra taki að sér að gifta pör af sama kyni. 

Sænska kirkjan hefur þegar samþykkt að gefa samkynhneigð pör saman í hjónaband. Við teljum mikilvægt að þjóðkirkjan fylgi því fordæmi, hafi áfram vígsluvald og stuðli þannig að áframhaldandi samfylgd kirkju og þjóðar í hjúskaparmálum. Við höfum opnað heimasíðuna www.einhjuskaparlog.is með frekari upplýsingum um þetta mikilvæga baráttumál. Við teljum að á grundvelli þeirrar vönduðu guðfræðiumræðu sem farið hefur fram á kirkjulegum vettvangi um kynhneigð og hjónaband á undanförnum fjórtán árum sé ekkert því til fyrirstöðu að vígslumönnum verði heimilað að gefa saman samkynhneigð pör í hjónaband og að þjóðkirkjan feti þannig í fótspor systurkirkna sinna. 

  1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur Setbergsprestakalli
  2. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustuprestur, Noregi 
  3. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor og prestur, Háskóla Íslands 
  4. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, sérþjónustuprestur, heimilisprestur á Grund
  5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, emerita, Kópavogi
  6. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustuprestur, Svíþjóð
  7. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, Garðasókn
  8. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, prestur, Reykjavík
  9. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur, Þorlákshafnarprestakalli
  10. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Laugarnesprestakalli 
  11. Bragi Jóhann Ingibergsson, sóknarprestur, Víðistaðaprestakalli
  12. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi
  13. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur, Laufásprestakalli
  14. Bryndís Valbjarnardóttir, guðfræðingur og útfararstjóri, Reykjavík
  15. Sr. Carlos Ari Ferrer, prestur og kennari, Reykjavík
  16. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalli
  17. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi
  18. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
  19. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli
  20. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur, Oddaprestakalli
  21. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prestur, Vestmannaeyjaprestakalli
  22. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sérþjónustuprestur, prestur fatlaðra, Reykjavík
  23. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur, Grafarvogsprestakalli 
  24. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi 
  25. Gunnar Einar Steingrímsson, djákni, Grafarvogssókn 
  26. Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Reykjavík
  27. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur Þingeyjarprófastdæmi 
  28. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur, Garðaprestakalli
  29. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og prestur, Háskóla Íslands
  30. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur, Laugarnesprestakalli
  31. Dr. Hjalti Hugason, prófessor og prestur, Guðfræðideild Háskóla Íslands
  32. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, héraðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi
  33. Hróbjartur Árnason, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands
  34. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi 
  35. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur Kirkjubæjarprestakalli
  36. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Hjallaprestakalli 
  37. Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur og aðstoðarskólastjóri
  38. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, guðfræðingur og doktorsnemi, Borgarnesi
  39. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur, Langholtsprestakalli 
  40. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur Garðaprestakalli 
  41. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skólaprestur og framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar.
  42. Karítas Kristjánsdóttir, guðfræðingur, Kirkjubæjarklaustri
  43. Sr. Karl Valgarður Matthíasson vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar
  44. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi
  45. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli 
  46. Kristín Sigríður Garðarsdóttir, djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi
  47. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur Kjalarnesprófastdæmi 
  48. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur, Valþjófsstaðarprestakalli
  49. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prestur Grafarvogsprestakalli 
  50. Sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur, Ísafjarðarprestakalli
  51. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni, Árbæjarsókn
  52. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Hveragerði
  53. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur Selfossprestakalli 
  54. Rósa Kristjánsdóttir, djákni Landspítala- Háskólasjúkrahúsi
  55. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur, Reykjavík
  56. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík
  57. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi
  58. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur, Hjallaprestakalli
  59. Sr. Sjöfn Mueller Thor, sóknarprestur Reykhólaprestakalli
  60. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, Grafarholtsprestakalli
  61. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur, Sauðárkróksprestakalli 
  62. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
  63. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprestur Hólmavíkurprestakalli
  64. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, Árbæjarprestakalli 
  65. Sr. Sigurður Grétar Helgason, sóknarprestur Seltjarnarnesprestakalli
  66. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur Nesprestakalli 
  67. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur, Keflavíkurprestakalli
  68. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, Möðruvallaprestakalli 
  69. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent og guðfræðingur, Háskóla Íslands 
  70. Svala Sigríður Thomsen,djákni á Grund
  71. Sr. Svanhildur Blöndal, prestur í Hrafnistu í Reykjavík og á Vífilsstöðum
  72. Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi, Reykjavík
  73. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, Akureyrarprestakalli
  74. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprestur, prestur innflytjenda 
  75. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprestur, Skagastrandarprestakalli
  76. Valgerður Hjartardóttir, djákni, hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustunni Karítas
  77. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi
  78. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur, Grafarvogsprestakalli
  79. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur, Digranesprestakalli
  80. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur, Árbæjarprestakalli 
  81. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur, Hafnarfjarðarprestakalli
  82. Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur 
  83. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, Nesprestakalli

Upphaflega birt í Fréttablaðinu og á Vísi.is 5/5/2010.

Deila