Ein hjúskaparlög

Við erum prestar, djáknar og guðfræðingar og störfum á vettvangi þjóðkirkjunnar og kristinna fríkirkna á Íslandi. Við fögnum einum hjúskaparlögum á Íslandi sem taka gildi 27. júní 2010. Við fögnum því að þá geti bæði samkynhneigðir og gagnkynhneigðir gengið í hjónaband í kirkjunni sinni.

1/7

Mannréttindaviðurkenning Samtakanna 78 2010

Tæplega eitt hundrað prestar, djáknar og guðfræðingar sem starfa á vettvangi kirkjunnar og lögðu lóð á vogarskálarnar við umfjöllun og afgreiðslu um ein hjúskaparlög hljóta í dag Mannréttindaviðurkenningu Samtakanna 78 fyrir ómetanlegt framlag í þágu mannréttinda samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-fólks á Íslandi.

Reykjavík, 27. júní 2010
Svanfríður Anna Lárusdóttir
Formaður Samtakanna 78

 Viðtakendur:

1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur Setbergsprestakalli

2. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, prófastur Vestfjarðaprófastdæmi

3. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustuprestur, Noregi 

4. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor, Háskóla Íslands 

5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, emerita, Kópavogi

6. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, heimilisprestur á Grund

7. Sr. Axel Árnason Njarðvík, héraðsprestur, Suðurprófastdæmi

8. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustuprestur, Svíþjóð

9. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, Vídalínskirkju

10. Sr. Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri, Biskupsstofu

11. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, verðandi sóknarprestur í Kells á Írlandi

12. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur, Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli

13. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur, Þorlákshafnarprestakalli

14. Sr. Bára Friðriksdóttir, sóknarprestur Tjarnaprestakalli

15. Sr. Birgir Ásgeirsson, prestur, Hallgrímsprestakalli

16. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Laugarnesprestakalli 

17. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur, Laufásprestakalli

18. Sr. Bragi Jóhann Ingibergsson, sóknarprestur Víðistaðaprestakalli

19. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

20. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík

21. Sr. Carlos Ari Ferrer, kennari, Reykjavík

22. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalli

23. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi 

24. Sr. Daniel Mueller Thor, Reykhólum

25. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

26. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli

27. Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur, Grindavíkurprestakalli

28. Sr. Erla Guðmundsdóttir, prestur, Keflavíkurprestakalli

29. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson, sóknarprestur, Holtsprestakalli í Önundarfirði

30. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur, Oddaprestakalli

31. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prestur, Vestmannaeyjaprestakalli

32. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sérþjónustuprestur, prestur fatlaðra, Reykjavík

33. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur, Grafarvogsprestakalli 

34. Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur Kjalarnesprófastdæmi

35. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi 

36. Gunnar Einar Steingrímsson, djákni í Grafarvogskirkju

37. Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Reykjavík 

38. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur Þingeyjarprófastdæmi 

39. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur Garðaprestakalli

40. Sr. Halldór Reynisson, fræðslustjóri, Biskupsstofu

41. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands

42. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur, Laugarnesprestakalli

43. Dr. Hjalti Hugason, prófessor, Háskóla Íslands

44. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík

45. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, héraðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi

46. Hróbjartur Árnason, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands

47. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi 

48. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur Kirkjubæjarklaustri

49. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, verkefnastjóri Biskupsstofu

50. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Hjallaprestakalli 

51. Jóhanna Magnúsdóttir guðfræðingur og aðstoðarskólastjóri við Menntaskólann Hraðbraut

52. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir, prófastur, Eiðaprestakalli

53. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, guðfræðingur og doktorsnemi, Borgarnesi

54. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur, Langholtsprestakalli 

55. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur Garðaprestakalli 

56. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, emerita, Akureyri

57. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skólaprestur og framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar.

58. Karítas Kristjánsdóttir guðfræðingur, Kirkjubæjarklaustri

59. Sr. Karl Valgarður Matthíasson, vímuvarnaprestur, Reykjavík

60. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

61. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli 

62. Kristín Sigríður Garðarsdóttir, djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi

63. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur Kjalarnesprófastdæmi 

64. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur, Valþjófsstaðarprestakalli

65. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prestur Grafarvogsprestakalli 

66. Sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur, Ísafjarðarprestakalli 

67. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni Árbæjarkirkju

68. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Hveragerði

69. Nína Leósdóttir, guðfræðingur og kennari, Reykjavík

70. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur Selfossprestakalli 

71. Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur, Bústaðaprestakalli

72. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík

73. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur, Grensásprestakalli

74. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sóknarprestur Mosfellsprestakalli

75. Rósa Kristjánsdóttir, djákni, Landspítala-Háskólasjúkrahúsi

76. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

77. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur, Hjallaprestakalli

78. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, Grafarholtsprestakalli

79. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur, Sauðárkróksprestakalli 

80. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

81. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur Ólafsfjarðarprestakalli

82. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprestur, Hólmavíkurprestakalli

83. Sigríður Rún Tryggvadóttir, æskulýðsfulltrúi Árbæjarkirkju

84. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, Árbæjarprestakalli 

85. Sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur, Ásprestakalli

86. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur Nesprestakalli 

87. Sr. Sigurður Grétar Helgason, sóknarprestur, Seltjarnarnesprestakalli

88. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknarprestur, Djúpavogsprestakalli

89. Sr. Sjöfn Mueller Þór, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli

90. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur, Keflavíkurprestakalli

91. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, Möðruvallaprestakalli 

92. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent, Háskóla Íslands 

93. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir, bóndi, Reykjahverfi, Þing.

94. Svala Sigríður Thomsen, djákni á Grund

95. Sr. Svanhildur Blöndal, sérþjónustuprestur, prestur á Hrafnistu í Reykjavík og á Vífilsstöðum

96. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, Akureyrarprestakalli

97. Sveinbjörg Pálsdóttir guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi, Hafnarfirði

98. Sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur Háteigsprestakalli

99. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprestur, prestur innflytjenda 

100. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprestur, Skagastrandarprestakalli

101. Valgerður Hjartardóttir, djákni, hjúkrunar og ráðgjafarþjónustunni Karítas.

102. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

103. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur, Grafarvogsprestakalli

104. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur, Digranesprestakalli

105. Sr. Þorgeir Arason, héraðsprestur, Múlaprófastdæmi

106. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur, Árbæjarprestakalli 

107. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur, Hafnarfjarðarprestakalli 

108. Sr. Þórhildur Ólafs, prestur Nesprestakalli

109. Sr. Þórir Stephensen,emeritus, Reykjavík

110. Ævar Kjartansson, guðfræðingur og dagskrárgerðarmaður, Reykjavík

111. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, Nesprestakalli

13 notes

Deila
29/6

7 notes

Deila
28/6

Þjóð, kirkja og hjúskapur

eftir Árna Svan Daníelsson og Kristínu Þórunni Tómasdóttur

Um helgina tóku gildi ný hjúskaparlög á Íslandi. Fyrir það hafa Íslendingar hlotið hrós frá mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem lítur á lögin sem skref í þá átt að samkynhneigðir njóti jafnra réttinda og virðingar.

Hér á landi hafa trúfélög umboð til að gefa fólk saman í hjónaband. Þess vegna hafa þau verið virkir þátttakendur í samtalinu um hjúskaparlögin. Eðli málsins samkvæmt snertir þetta mál þjóðkirkjuna með sérstökum hætti þar sem prestar hennar framkvæma langflestar hjónavígslur sem fram fara í landinu.

Innan þjóðkirkjunnar hafa málefni samkynhneigðra verið mikið til umfjöllunar. Kirkjan hefur, eins og samfélagið almennt, þurft að horfast í augu við að margt í hennar eigin sögu hefur stuðlað að útskúfun og jaðarsetningu samkynhneigðra. Viðhorfsbreyting gagnvart samkynhneigðum hefur átt sér stað í þjóðkirkjunni, eins og í samfélaginu almennt.

Þjóðkirkja hefur ríkari skyldur við þjóðina en önnur trúfélög. Kirkja og þjóð eiga að ganga saman þegar kemur að umbótum á mannréttindum og auknu jafnrétti. Annars missir kirkjan marks sem þjóðkirkja og gerir sig að sértrúarsöfnuði. Sértrúarsöfnuður lýtur öðrum lögmálum en þjóðkirkja og getur í nafni trúar og samviskufrelsis farið aðra leið en fólkið í landinu þegar kemur að umbótum á mannréttindum.

Frá því lög um staðfesta samvist tóku gildi 27. júní 1996 hafa samkynja pör getað fengið blessun og bæn yfir samband sitt í kirkju. Frá 27. júní 2008 hafa pör getað staðfest samvist sína í kirkju. Frá 27. júní 2010 geta bæði samkynja pör og gagnkynja pör gengið í hjónaband í kirkju. Þetta er eðlileg þróun. Kirkjan er samstiga þjóðinni í umbótum á mannréttindum og velferð. Þjóð og kirkja eiga samleið þegar ný hjúskaparlög taka gildi.


Deila
28/6

Deila
27/6

Ljós hennar er ekki myrkur

eftir Baldur Kristjánsson

Það er  í dag sem lögin um ein hjúskaparlög taka gildi, ekki satt?  Þetta er fallegur dagur.  Við höfum náð mikilsverðum áfanga í átt að því Íslandi að allir séu jafnir fyrir öllum lögum án tillits til nokkurs skapaðar hlutar.

Hvorki kynhneigð, kyn, uppruni, litarháttur, né nokkuð annað ómálefnalegt má mismuna fólki gagnvart lögum  En setning laga eru ekki nóg.  Framkvæmd þeirra á og þarf að vera mismununarlaus.  Enginn á að upplifa það að uppruni hans kyn, kynhneigð eða annað slíkt krefjist tilfæringa, skapi vandamál í fullnustu lagalegra réttinda þeirra.  Með öðrum orðum: Enginn á að þurfa að ganga milli Pontíusar og Pílatusar svo notaður sé frægur ruglingur.

Biskup Íslands hefur staðið sig vel á síðustu metrunum. Helgisiðanefnd kirkjunnar sömuleiðis. Auglýsendurnir áttatíu hafa bjargað orðspori kirkjunnar.  Þessir áttatíu eiga sér marga skoðababræður og systur sem voru ekki með vegna þess að þau vildu ekki auglýsa með þessum hætti.  En auglýsingin er snilld.  Hún sýnir að íslenska kirkjan er ekki að daga uppi eins og tröll í dagskímu.

Hún er ekki tröll.  Ljós hennar er ekki myrkur.

Og áfram vinnum við að fordómalausu samfélagi á vettvangi kirkju og utan.

Deila
26/6
Til hamingju með ein hjúskaparlög – gleðikveðja frá prestum, djáknum og guðfræðingum sem starfa í þjóðkirkjunni og kristnum fríkirkjum á Íslandi.

Til hamingju með ein hjúskaparlög – gleðikveðja frá prestum, djáknum og guðfræðingum sem starfa í þjóðkirkjunni og kristnum fríkirkjum á Íslandi.

Deila
26/6

1 note

Deila
26/6

2 notes

Deila
26/6

Deila
25/6
Presthjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir voru í viðtali við Fréttablaðið föstudaginn 25. júní 2010.

Presthjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir voru í viðtali við Fréttablaðið föstudaginn 25. júní 2010.

3 notes

Deila